Skip to content

Nótera - nálgunin

Ég stofnaði Nótera árið 2010 eftir áralanga reynslu í stjórnunarráðgjöf hjá PwC, IBM og ParX.

Í dag vinn ég með stjórnendum og teymum þar sem flókin mál þarf að skýra og ákvarðanir að móta.

Vinnan getur tekið á sig mismunandi form, allt eftir verkefnum og þörfum hverju sinni – frá stuttum samtölum til vinnustofa og áframhaldandi samstarfs. 

Sérfræðikunnátta skiptir máli – en hún dugar sjaldnast ein og sér.
Virðið liggur í því að skapa sameiginlegan skilning og koma hópnum áfram.

Í litlu og fjölbreyttu umhverfi eins og Íslandi reynir oft á að ná utan um ólík sjónarmið og hagsmuni. Í slíkum verkefnum liggur virðið ekki aðeins í sérfræðisvörum, heldur í því að skapa aðstæður þar sem ólík þekking nýtist og leiðir til sameiginlegs skilnings og skýrra ákvarðana.

Í gegnum þessi verkefni hefur nálgunin þróast yfir í þá vinnu sem Nótera byggir á í dag:
að leiða vinnu þar sem fólk sjálft skapar skýrleika, mótar niðurstöður og ber ábyrgð á framhaldinu.

Grundvallarreglur

Skýr rammi

Í samstarfi er settur skýr rammi um markmið, hlutverk og tíma.

Virk þátttaka

 Ólík sjónarmið fá rými og verða hluti af sameiginlegri niðurstöðu. 

Áþreifanlegar niðurstöður

Vinnan skilar skýrum niðurstöðum og næstu skrefum.

Um mig

Ég hef unnið með stjórnendum og teymum í yfir tvo áratugi – bæði sem ráðgjafi og í stjórnunarhlutverkum og eigin rekstri.

Fyrri hluti ferilsins var í stjórnunarráðgjöf hjá PwC, IBM og ParX.
Síðan 2010 hef ég starfað á eigin vegum, byggt upp og leitt verkefni og fyrirtæki.

Undanfarin ár hef ég einnig starfað við þróun og framkvæmd stjórnendaþjálfunar hjá Háskólanum í Reykjavík, þar sem ég hef unnið með fyrirtækjum að því að greina þarfir og hanna lausnir fyrir stjórnendur og teymi.

Ég hef því bæði unnið sem ráðgjafi og verið inni í rekstri, breytingaverkefnum og þjálfun – þar sem ákvarðanir þurfa að virka í framkvæmd.

Í gegnum þessi verkefni hef ég unnið náið með stjórnendum í stefnumótun, breytingum og framkvæmd – þar sem flókin mál þarf að skýra og ákvarðanir skipta máli.

Verkefnin eru ólík að umfangi og formi, en eiga það sameiginlegt að snúast um að skýra stöðu og styðja við ákvarðanir sem hægt er að framkvæma.  

Ferilskráin mín er í fullri lengd á LinkedIn

DSC02466
kh

Í stuttu máli er þetta svona í dag:

  • 20+ ár reynsla
  • Stofnandi Nótera
  • Managing Director, ISF
  • Vinn með stjórnendum og teymum

Heyrumst!

Ef þú vilt ræða hvernig þessi nálgun getur nýst í þínu samhengi, er velkomið að hafa samband.
Við getum skoðað saman hvort og hvernig þessi vinnuaðferð hentar þínum aðstæðum.